Arnar Gunnlaugs: Við einir sem geta tapað þessu móti
Auglýsing

Arnar Gunnlaugsson

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Aron Elís Þrándarsson skoraði í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Víkingur R. mætti í heimsókn á Meistaravelli fyrr í kvöld og unnu nauman 2-1 sigur á KR. Arnar Gunnlaugs mætti í viðtal eftir leik.
„Maður var búinn að eyrnamerkja þetta sem einn af erfiðustu útivöllunum í deildinni og miðað við sögu þessara leikja milli þessa tveggja félaga þá olli hann ekki vonbrigðum. Þetta var ekki gæðamikill leikur en skemmtanagildið var mikið. Þetta var svona gamaldags baráttuleikur á góðum grasvelli. Við náðum sem betur fer að innbyrða sigur. En mikið í ósköpunum settu þeir okkur undir mikla pressu í lokin, en við stóðumst hana. Gríðarlega öflug 3 stig."
Aron Elís Þrándarsson kemur beint í byrjunarliðið og skorar
„Hann var gríðarlega öflugur í dag. Hann skilaði af sér góðu dagsverki og bónus að fá mark frá honum líka. Hann er gríðarlega öflugur skallamaður og mun nýtast okkur vel."
Arnar var spurður um hvernig hann meti toppbaráttuna
hún verður barátta, við erum að halda þeim smá frá okkur. Við megum hvergi mistakast, þetta eru tvö mjög góð lið og þau munu vera fljót að refsa okkur. Ég segi alltaf að þetta snýst um okkur, halda fókus og það erum við einir sem geta tapað þessu móti."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.