Brynjar Björn: Ánægðir fyrir hönd Shkelzens


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Vont tap, fáum allt of mikið af mörkum á okkur, fáum allt of einföld mörk á okkur" sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis eftir 1-5 tap á heimavelli gegn Þrótti í Lengjudeildinni.
„Byrjum illa, fáum á okkur mark snemma, fáum tvö mörk á okkur þegar við erum manni færri, Birnir er út af og við erum að klára skiptingu. Þannig að þetta skilgreinir okkur ekki sem lið eða félag, en það er klárt að við þurfum að endurstilla okkur einhvern veginn og vera klárir í leikina sem eftir eru."
„Okkur vantaði einhvern neista, vantaði ákefð, vantaði smá gæði í það sem við vorum að gera, sendingar og annað, hreyfingu á leikmönnum sem við erum búnir að gera vel. Svona frammistaða kemur á óvart frá liðinu og leikmönnum."
Brynjar segir að frammistaðan í dag var ekki líkt Leiknisliðinu frá því sem við höfum séð í sumar.
„Klárlega ekki. við höfum fengið svo sem tvö þrjú mörk á okkur en við höfum alltaf verið kveikt á okkur og verið klár í leikinn. Samanber Afturelding í síðustu viku, við erum undir meira og minna allan leikinn fyrir utan smá tíma þar sem er eitt eitt en við erum alltaf að reyna og erum á kafla líklegri til þess að jafna þrjú þrjú en heldur að tapa fjögur tvö."
Shkelzen Veseli er nýfarin til Vals frá Leikni.
„Shkelzen er góður leikmaður og uppalinn Leiknismaður, en á sama tíma erum við glaðir fyrir hans hönd og að hann fái tækifæri."



