23.08.26 - 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Iraola: Ég kann virkilega að meta það

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var ánægður með frammistöðu sinna manna í 2-2 jafnteflinu gegn Newcastle United í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á St. James' Park í dag.

TENGT EFNI
„Gefumst aldrei upp“
Iraola taldi Liverpool hafa verið betra liðið en var ósáttur við varnarleikinn, sérstaklega í öðru marki Newcastle.
Hann var þó ánægður með baráttuandann og framlag þeirra leikmanna sem komu inn af bekknum.
„Þegar maður skorar á síðustu mínútu verður maður að fagna stiginu. Ég kann að meta að leikmennirnir gáfust aldrei upp. Ég er nokkuð viss um að við fengum fleiri færi og mér fannst ósanngjarnt að Newcastle skyldi komast snemma yfir. Þegar á heildina er litið fengum við betri færin.“
„Við kláruðum sóknirnar ekki nógu vel í fyrri hálfleik. Við komumst oft með boltann að vítateignum en þurftum að láta vaða. Þegar við kláruðum ekki sóknirnar gátu þeir brunað fram í skyndisóknir.“
„Leikmennirnir sem komu inn af bekknum færðu okkur mikla orku og þá sá maður betur hvernig við viljum spila.“
„Á heildina litið spiluðum við mikið á þeirra vallarhelmingi og áttum góða kafla með boltann. Það var erfitt að verjast fyrsta markinu því Anthony Elanga er mjög fljótur. Í öðru markinu vorum við hins vegar með nægilega marga menn til baka. Við þurftum að gera betur, fara ákveðnar í návígin og vinna boltann,“ sagði Iraola.