23.09.16 - 22:46
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gunnar: Stóru fiskarnir byrjaðir að eltast við mína leikmenn
Auglýsing

Gunnar Magnús Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Magnús Jónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Kelfavíkur var að sjálfsögðu svekktur eftir naumt tap liðsins gegn Haukum í 1. deild kvenna í kvöld. Með tapinu varð ljóst að Keflavík fer ekki upp um deild að ári.
Hann segir það sérstaklega svekkjandi að vera svona nálægt þessu enda var Keflavík á leiðinni upp í stöðunni 2-1 en þannig var hún þegar skammt var eftir. Keflavík náði hins vegar ekki að halda út og Haukar skoruðu mark undir lokin.

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði, við vorum ótrúlega náælgt þessu. Ég hélt við værum búin að loka leiknum, við náðum þessu eina marki sem dugði en svo missum við hausinn.\"
Haukar skoruðu tvö mörk strax í byrjun seinni hálfleiks og missti Gunnar af fyrra markinu, svo fljótt kom það.
„Ég missti af fyrsta markinu, ég var að koma úr klefanum. Auðvitað er slæmt að byrja svona.\"
Sveindís Jane Jónsdóttir er markahæst allra í 1. deildinni í sumar en hún er fædd árið 2001. Gunnar segist finna fyrir áhuga stærri liða á stelpunni.
„Hún getur orðið asskoti góð, hún er 15 ára gömul og með gríðarlega hæfileika. Hún á eftir að ná langt en stóru fiskarnir eru byrjaðir að eltast við einhverja leikmenn,\" sagði Gunnar.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér ða ofan.