Völsungur er kominn af botni 2. deildarinnar eftir góðan sigur á útivelli gegn KF í dag.
Oumar Diouck skoraði snemma leiks fyrir KF en Sæþór Olgeirsson sneri stöðunni við með tveimur mörkum af vítapunktinum í síðari hálfleik.
Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið á lokakaflanum en niðurstaðan mikilvægur sigur Völsungs, sem er núna í næstneðsta sæti tveimur stigum frá Víði í öruggu sæti.
Dalvík/Reynir er á botninum eftir tap gegn Kára og er Víðir í síðasta örugga sæti deildarinnar eftir að hafa tapað fyrir Njarðvíkingum. Víðir á þó leik til góða.
Njarðvík er enn í toppbaráttunni eftir þennan sigur. Liðið er í fjórða sæti, aðeins einu stigi frá Selfossi og Þrótti sem deila öðru sætinu. Selfoss á þó leik til góða.
KF 1 - 2 Völsungur
1-0 Oumar Diouck ('9)
1-1 Sæþór Olgeirsson ('65, víti)
1-2 Sæþór Olgeirsson ('84, víti)
Rautt spjald: Halldór Mar Einarsson, KF ('82)
Rautt spjald: Ásgeir Kristjánsson, Völsungur ('86)
Rautt spjald: Þorsteinn Þór Tryggvason, KF ('90)
Víðir 1 - 2 Njarðvík
0-1 Bergþór Ingi Smárason ('8)
0-2 Ivan Prskalo ('48)
1-2 Nathan Ward ('80)
Dalvík/Reynir 1 - 2 Kári
1-0 Áki Sölvason ('4)
1-1 Elís Dofri G Gylfason ('18)
1-2 Jón Vilhelm Ákason ('44, víti)
Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir