Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. september 2020 18:18
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Gylfi með bandið í bikarnum
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er með fyrirliðaband Everton í leik gegn C-deildarliðinu Fleetwood Town í deildabikarnum.

Carlo Ancelotti stillir upp sterku byrjunarliði Everton þar sem Lucas Digne, Richarlison og Dominic Calvert-Lewin byrja allir inná.

Frank Lampard teflir einnig fram sterku liði er Chelsea tekur á móti Barnsley á Stamford Bridge.

Kai Havertz er áfram í byrjunarliðinu þar sem hann er enn að laga sig að enska boltanum. Tammy Abraham fær tækifæri í fremstu víglínu og byrjar Thiago Silva í hjarta varnarinnar. Timo Werner og Ben Chilwell byrja á bekknum en Hakim Ziyech er enn fjarverandi.

Að lokum á Newcastle leik við Morecambe og má finna Miguel Almiron og Joelinton meðal byrjunarliðsmanna.

Everton: Pickford, Kenny, Keane, Digne, Nkounkou, Delph, Sigurðsson, Iwobi, Bernard, Richarlison, Calvert-Lewin
Varamenn: Lössl, Coleman, Davies, Doucoure, Walcott, Gordon, Kean



Chelsea: Caballero, Azpilicueta, Tomori, T. Silva, Emerson, Barkley, Kovacic, Mount, Havertz, Abraham, Hudson-Odoi
Varamenn: Baxter, James, Zouma, Chilwell, Jorginho, Werner, Giroud



Newcastle: Gillespie, Krafth, Lascelles, Clark, Yedlin, Hayden, S. Longstaff, Murphy, Almiron, Ritchie, Joelinton
Varamenn: Darlow, Carroll, Shelvey, Wilson, Hendrick, Fraser, Barlaser
Athugasemdir
banner
banner
banner