23.09.21 - 09:40
Elvar Geir Magnússon
Veðurspáin fyrir lokaumferðina farin að líta mun betur út

Svona á veðrið að vera í hálfleik.

Mynd: Vedur.is

Svona á veðrið að vera í hálfleik.

Mynd: Vedur.is
Lokaumferðin í Pepsi Max-deildinni verður spiluð á laugardaginn og þá ræðst hvort Víkingur eða Breiðablik verður Íslandsmeistari og hvaða lið mun falla með Fylki.
Í upphafi vikunnar voru talsverðar áhyggjur af veðurspánni fyrir laugardaginn en samkvæmt <a href="https://www.vedur.is/" target="_blank">vedur.is</a> hefur hún skánað verulega.
Á meðan lokaumferðinni stendur er spáð því að það verði skýjað á höfuðborgarsvæðinu, 6 gráðu hiti og 7 metrar á sekúndu.
Á Akureyri er spáð því að það verði léttskýjað, 7 gráðu hiti og 3 metrar á sekúndu.
KSÍ tilkynnti félögunum í gær að lokaumferðin yrði á tilsettum tíma, klukkan 14 á laugardag.

laugardagur 25. september
14:00 Keflavík-ÍA (HS Orku völlurinn)
14:00 KA-FH (Greifavöllurinn)
14:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
14:00 Fylkir-Valur (Würth völlurinn)
14:00 Víkingur R.-Leiknir R. (Víkingsvöllur)
14:00 Breiðablik-HK (Kópavogsvöllur)