Fotbolti.net
23.10.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Onyewu til QPR (Staðfest)

Onyewu til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur samið við bandaríska varnarmanninn Oguchi Onyewu.

Onyewu hefur verið án félags síðan samningur hans hjá Sporting Lisabon rann út í sumar.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur meðal annars verið á mála hjá AC Milan og Newcastle á ferli sínum.
,,QPR er félag með mikinn metnað og ég vil vera hluti af því að hjálpa liðinu að komast aftur í úrvalsdeildina,\" sagði Onyewu.

QPR er í 2. sæti í Championship deildinni, tveimur stigum á eftir Burnley, en þessi lið mætast í toppslag um næstu helgi.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.