Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 23. október 2020 22:59
Brynjar Ingi Erluson
Bamford: Mun segja börnunum mínum frá þessu kvöldi
Patrick Bamford er kominn með sex mörk á tímabilinu
Patrick Bamford er kominn með sex mörk á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Enski framherjinn Patrick Bamford var í skýjunum eftir þrennuna sem hann skoraði í 3-0 sigri Leeds á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en hann segir að langþráður draumur hafi ræst á Villa Park.

Öll mörk Bamford komu í síðari hálfleik og voru þau öll afar lagleg en hann er nú kominn með sex mörk í deildinni á þessari leiktíð.

Leeds hefur gert frábæra hluti undir Marcelo Bielsa og situr liðið nú í 3. sæti deildarinnar.

„Ég tel ekki fyrstu leikina í ensku úrvalsdeildinni með því ég fékk bara alltaf nokkrar mínútur af bekknum. Núna er ég með stjóra sem hefur trú á mér og svo lengi sem ég held áfram að leggja hart að mér þá fæ ég traustið hans," sagði Bamford.

„Þetta var draumur að rætast. Þegar þriðja markið kom þá var ég í skýjunum. Þetta var stórt augnablik fyrir mig. Þetta sýnir bara hvernig þetta lið hefur virkað því án þeirra hefði ég ekki getað skorað og Marcelo hefur mikla trú á mér."

„Ég mun segja börnunum mínum frá þessu kvöldi og ég mun örugglega aldrei gleyma því," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner