Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   lau 23. október 2021 23:24
Elvar Geir Magnússon
Icardi og Wanda aftur hætt saman - Transkona steig fram
Mauro Icardi og Wanda Nara.
Mauro Icardi og Wanda Nara.
Mynd: Getty Images
Það hafa verið stormasamir dagar hjá Icardi fjölskyldunni en svo virðist sem Mauro Icardi og Wanda Nara hafi aftur slitið sambandi sínu. Er því nú lokið fyrir fullt og allt?

Wanda tilkynnti fyrir um viku síðan að þau hjónin væru að skilja en svo í miðri viku gáfu þau bæði út að þau væru hætt við skilnaðinn. Samband þeirra hefur verið umfjöllunarefni fjölmiðla enda fara þau ekki í neinar felur með sitt einkalíf og eru sífellt að setja inn færslur á samfélagsmiðla.

Í dag birti Icardi mynd af sjálfum sér á Instagram í treyju félagsliðs síns, Paris Saint-Germain. Hann er einn á myndinni og skrifaði við hana: „Það er ekki svo slæmt að vera einn".

Þá vekur athygli fjölmiðla að Icardi sé hættur að fylgja eiginkonunni á samfélagsmiðlum.

Dramatíkin varð enn meiri fyrr í dag þegar fyrirsætan Guendalina Rodriguez, sem er transkona, steig fram og opinberaði skilaboð sem hún segir að Wanda hafi sent sér. Guendalina hótar að opinbera myndir og hljóðbúta sem sanni að hún hafi verið í sambandi með Icardi.

Wanda hefur sakað Icardi um framhjáhald. Samband þeirra byrjaði reyndar með framhjáhaldi 2013 þegar Nara var gift Maxi Lopez, fyrrum samherja Icardi hjá Sampdoria. Wanda er ekki aðeins eiginkona Icardi heldur einnig umboðsmaður hans.

PSG gaf Icardi nýlega leyfi í nokkra daga svo hann gæti unnið í einkalífi sínu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner