„Bara heimsókn?" skrifar Mirror í fyrirsögn sinni við frétt um að Mauricio Pochettino sé kominn til Manchester með Paris Saint-Germain. PSG mætir City á morgun.
Pochettino er sterklega orðaður við Manchester United, hvort sem hann myndi taka við núna á miðju tímabili eða næsta sumar.
Pochettino er sterklega orðaður við Manchester United, hvort sem hann myndi taka við núna á miðju tímabili eða næsta sumar.
PSG er á toppi frönsku deildarinnar og hefur aðeins tapað einum leik á tímabilinu. Það hafa þó verið sögur í gangi um að hann ætli ekki að staldra lengi við í frönsku höfuðborginni.
Pochettino er sagður óánægður í París. Hann býr á hóteli á meðan fjölskylda hans býr í London.
Fjölmiðlar hafa velt því fyrir sér hvort þjálfarakapallinn verði á þá leið að Pochettino taki strax við United og Zinedine Zidane taki þá við stjórnartaumunum hjá PSG.
Michael Carrick stýrir United á meðan stjórnarmenn félagsins reyna að finna lausn á stjóramálunum.
Pochettino mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi PSG klukkan 17:15 að íslenskum tíma.
Athugasemdir