Glódís Perla Viggósdóttir og Orri Steinn Óskarsson eru knattspyrnufólk ársins 2024 samkvæmt niðurstöðu Leikmannavals KSÍ.
Glódís er fótboltakona ársins í þriðja sinn og þriðja árið í röð. Hún er bæði fyrirliði þýsku meistaranna í Bayern Munchen og íslenska landsliðsins sem tryggði sér á þessu ári farseðilinn á EM næsta sumar. Hún var tilnefnd tl Ballon d'Or verðlaunanna á þessu ári.
Sveindís Jane Jónsdóttir varð í öðru sæti í valinu og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir varð í þriðja sæti. Allar þrjár spila í þýsku deildinni og eru í lykilhlutverki í landsliðinu.
Um Glódísi:
Glódís varð þýskur meistari með Bayern í vor sem leið, en liðið tapaði ekki leik í deildinni - vann 19 og gerði þrjú jafntefli. Glódís lék alla 22 leiki liðsins og skoraði eitt mark. Hún lék alla sex leiki liðsins í Meistaradeild UEFA, en þar datt Bayern út eftir riðlakeppnina og fjóra leiki í bikar. Á yfirstandandi tímabili hefur Glódís leikið 11 leiki. Glódís, sem hefur leikið 132 leiki og skorað 11 mörk, lék alla leiki A kvenna í undankeppni EM 2025 og skoraði í þeim leikjum eitt mark.

Orri steinn er fótboltamaður ársins í fyrsta sinn. Hann var keyptur á metupphæð frá FC Kaupmannahöfn til Real Sociedad í lok ágúst og var besti leikmaður Íslands í Þjóðadeildinni í haust.
Albert Guðmundsson varð í öðru sætinu í valinu og Hákon Arnar Haraldsson varð í þriðaj sæti.
Um Orra Stein:
Orri Steinn hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í íslenska landsliðinu og lék hann 8 leiki með liðinu á árinu og skoraði í þeim 3 mörk. Hann hefur alls leikið 14 A-landsleiki og skoraði í þeim 5 mörk. Orri Steinn átti frábært tímabili með FC Köbenhavn í Danmörku á liðnu tímabili, lék 27 leiki í deildinni og skoraði í þeim 10 mörk og lagði upp 6, auk 3 bikarleikja (2 mörk) og 6 leikja í Meistaradeild UEFA. Orri Steinn hóf nýtt tímabil frábærlega með danska liðinu, skoraði 5 mörk í 6 leikjum ásamt því að skora 2 mörk í 6 leikjum í Sambandsdeildinni áður en hann var seldur til spænska úrvalsdeildarliðsins Real Sociedad. Þar hefur hann leikið 11 leiki í deildinni og skoraði í þeim 2 mörk ásamt því að leika 4 leiki í Evrópudeildinni og skora 1 mark.
Athugasemdir