Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 24. janúar 2022 22:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Daði til liðs við Kórdrengi (Staðfest)
Lengjudeildin
Daði var fyrirliði Þróttar
Daði var fyrirliði Þróttar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daði Bergsson hefur skrifað undir samning við Kórdrengi en hann kemur frá Þrótti.

Daði er 26 ára miðjumaður en hann er uppalinn í Þrótti og var fyrirliði liðsins undanfarin ár.

„Kórdrengir eru gríðarlega spenntir fyrir komu Daða og hlakka til að fá hann á völlinn í fallegu rauðu treyjuna!" segir í tilkynningu Kórdrengja.

Hann hefur mikla trú á Kórdrengjum en hann rifti samningi sínum við Þrótt í vetur og valdi Kórdrengi eftir að hafa rætt við nokkur lið.

„Ég hef mikla trú á Kórdrengjum og ég trúi því að við munum berjast um að komast upp í Pepsí. ÉG finn að metnaðurinn er mikill hjá félaginu og það sé krafa um að ná árangri," sagði Daði . við undirskriftina.

Athugasemdir
banner