Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. janúar 2022 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Færeyskur landsliðsmaður til Keflavíkur (Staðfest)
Mynd: Knattspyrnudeild Keflavíkur/Facebook
Patrik Johannesen hefur skrifað undir samning við Keflavík.

Patrik er færeyskur landsliðsmaður en hann kemur til liðsins frá norska liðinu Egersund.

Hann getur spilað bæði á kanti og sem fremsti maður. Hann hefur leikið 187 leiki á ferlinum og skorað 79 mörk.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem Keflavík semur við fyrir átökin í sumar. Keflavík var nýliði í efstu deild á síðustu leiktíð og endaði í 10. sæti.

Komnir
Ásgeir Páll Magnússon frá Leikni F.
Dani Hatakka frá Finnlandi
Ernir Bjarnason frá Leikni R.
Rúnar Gissurarson frá Reyni S.
Sindri Snær Magnússon frá ÍA

Farnir
Christian Volesky
Davíð Snær Jóhannsson til Ítalíu
Athugasemdir
banner
banner
banner