Ögmundur: Eitthvað sem gekk ekki alveg upp
Auglýsing

Ögmundur gengur af velli eftir leikinn í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var erfitt tap, þeir spiluðu mjög vel,\" sagði Ögmundur Kristinsson sem lék allan leikinn í marki Íslands í 2-1 tapi gegn Danmörku í Herning í kvöld.
„Við byrjuðum mjög vel fyrstu tíu mínúturnar og vorum sterkari aðilinn en eftir það hentaði leikskipulag þeirra þeim og við fengum margar sóknir á okkur.\"
„Það var eitthvað sem gekk ekki alveg upp hjá okkur og við verðum að fara yfir það og sjá hvað gerðist.\"
Bæði mörk Danmerkur komu eftir klaufaskap í vörn íslenska liðsins.
„Þeir gerðu vel allan leikinn, það var mikið hlaupið á þá allan leikinn og það gaf auga leið að þeir myndu fá einhverjar opnanir.\"
Ögmundur var hundfúll yfir tapinu í kvöld en var hann ánægður með eigin frammistöðu?
„Það er erfitt að líta á það beint eftir leikinn þegar maður er nýbúinn að tapa og er ekkert sáttur. En heilt yfir allt í lagi.\"