Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 24. mars 2021 14:59
Magnús Már Einarsson
Keflavík fær sóknarmann frá Kormáki/Hvöt (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur fengið sóknarmanninn Oliver James Kelaart Torres í sínar raðir.

Oliver skoraði tíu mörk í fjórtán leikjum í 4. deildinni með Kormáki/Hvöt í fyrra.

Hinn 22 ára gamli Oliver á ættir að rekja til Spánar og Ástralíu.

Fyrr í vetur spilaði hann með Keflavík í Fótbolta.net mótinu og nú hefur hann fengið félagaskipti.

Keflavík vann Lengjudeildina í fyrra en liðið mætir Víkingi í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar þann 23. apríl næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner