Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 24. mars 2021 08:00
Victor Pálsson
Kieran Gibbs fer til Inter Miami (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Kieran Gibbs, fyrrum landsliðsmaður Englands, mun ganga í raðir Inter Miami í Bandaríkjunum eftir tímabilið.

Þetta var staðfet í gær en Gibbs er á mála hjá West Bromwich Albion í dag sem leikur í ensku úrvalsdeildinni.

Gibbs er 31 árs gamall en hann lék lengi með Arsenal og spilaði 137 deildarleiki frá 2007 til 2017.

Þetta verður síðasta tímabil Gibbs á Englandi í bili og mun hann nú reyna fyrir sér í MLS-deildinni.

Gibbs á að baki tíu landsleiki fyrir England en hann var fyrst valinn fyrir 11 árum síðan.
Athugasemdir
banner
banner