Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 24. mars 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jökull framlengir í Mosfellsbæ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Jörvar Þórhallsson úr Aftureldingu hefur gert nýjan samning við félagið sem gildir út tímabilið.

Miðjumaðurinn knái er á leið inn í sitt sjötta tímabil með Aftureldingu en hann kom til félagsins frá Víkingi R.

Á þessum tíma sínum hjá Aftureldingu hefur hann spilað 80 leiki og skorað fimm mörk í deild ásamt því að skora tvö mörk í tólf bikarleikjum.

Hann átti þátt í því að koma liðinu upp úr 2. deildinni árið 2018 og hefur verið fastamaður í liðinu síðan.

Jökull mun halda áfram að spila með Aftureldingu en hann skrifaði í gær undir nýjan samning sem gildir út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner