Heimild: Leiknir
Leiknir í Breiðholti hefur kynnt kólumbíska leikmanninn Andrés 'Manga' Escobar formlega en hann verður með liðinu í Pepsi Max-deildinni í sumar.
„Fyrirhugað var að kynna Kólumbíumanninn okkar, Andrés 'Manga' Escobar, með formlegum hætti fyrr en raunin er og setja þá (Staðfest) svigann en þær áætlanir runnu út í sandinn vegna síðustu Covid fótboltastöðvunar. En Manga er klár í slaginn og verður með okkur í sumar, hann hefur spilað undanfarna æfingaleiki. Hann er 29 ára vinstri kantmaður sem á að fylla skarð Vuk," segir á heimasíðu Leiknis.

Sjá einnig:
Mætti drukkinn á æfingu í Kólumbíu - „Drullu spenntur að sjá þennan gæja"
Manga hefur víða komið við á sínum ferli en hann hóf feril sinn í Deportivo Cali áður en Dynamo Kiev frá Úkraínu keypti leikmanninn. Hann hefur meðal annars spilað fyrir Vasco da Gama og var í yngri landsliðum Kólumbíu.
Hér að neðan má sjá viðtal við Manga sem Leiknir birti á miðlum sínum en Breiðholtsliðið komst upp úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili og er spáð falli beint aftur niður.
Athugasemdir