Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 13:45
Elvar Geir Magnússon
Estevao gæti misst af HM
Estevao.
Estevao.
Mynd: EPA
Óvissa ríkir um hvort hinn 18 ára gamli Estevao verði með Brasilíu á HM í sumar eftir að hann meiddist aftan í læri með Chelsea í 1-0 tapinu gegn Manchester United á laugardaginn síðasta.

Estevao verður ekki meira með Chelsea á tímabilinu og óvissa ríkir um þátttöku hans á HM. Hann var fastamaður í hópi Carlo Ancelotti hjá Brasilíu í aðdraganda mótsins.

Calum McFarlane bráðabirgðastjóri Chelsea sagðist ekki geta svarað því hvort Estevao yrði leikfær fyrir heimsmeistaramótið.

Heimildarmenn BBC sem tengjast Estevao segja að hann verði klár en það er spurning hvort Ancelotti velji hann þegar hann fær ekki tækifæri til að sanna það fyrir mótið.

Estevao var greinilega miður sín þegar hann meiddist gegn United.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner