banner
   þri 24. maí 2022 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Mbappe: Veit ekki hvar ég verð eftir þrjú ár
Mynd: EPA

Kylian Mbappe skrifaði undir þriggja ára samning við PSG á dögunum en margir héldu að hann væri á leið til Spánarmeistara Real Madrid.


Mbappe er ánægður með ákvörðun sína en útilokar ekki að ganga í raðir Real Madrid þegar samningurinn hans rennur út eftir þrjú ár. 

„Ég ber virðingu fyrir Real Madrid og Florentino Perez. Ég hringdi í hann til að tilkynna honum þetta persónulega áður en yfirlýsingin var gefin út. Við eigum náið samband," sagði Mbappe.

„Ég þurfti að taka ákvörðun fyrir sjálfan mig og ég tel mig hafa tekið bestu ákvörðunina. Ég veit ekki hvað gerist í framtíðinni, ég veit ekki hvar ég verð eftir þrjú ár.

„Ég vil þakka stuðningsmönnum Real Madrid fyrir að samþykkja mig sem einn af þeirra eigin. Ég skil vonbrigði fólks en ég vona að fólk skilji þá líka mína ákvörðun að vera áfram í heimalandinu."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner