Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. maí 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tierney missir af umspilinu
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images

Kieran Tierney, vinstri bakvörður Arsenal, missir af mikilvægum mánuði fyrir skoska landsliðið.


Tierney meiddist á hné í síðasta landsleikjahléi og þurfti að fara í aðgerð í apríl.

Aðgerðin hélt honum frá út úrvalsdeildartímabilið og núna missir hann einnig af júní mánuði þar sem Skotar spila fjóra til fimm landsleiki, meðal annars undanúrslitaleik um sæti á HM í vetur.

Skotar mæta stríðshrjáðum Úkraínumönnum í umspilinu 1. júní og takist þeim að sigra þar er hörkuúrslitaleikur framundan við nágrannana í Wales nokkrum dögum síðar.

Meiðsli Tierney ættu ekki að gera of mikið til í ljósi þess að Skotar eiga góða bakverði í dag. Tierney er að vísu fjölhæfur og getur einnig spilað sem miðvörður en Andy Robertson og Aaron Hickey eru ekki bakverðir af verri endanum.

Hér fyrir neðan má sjá 28 manna leikmannahóp Skota fyrir leikina í júní. Það eru einn eða tveir umspilsleikir og þrír í Þjóðadeildinni.

Í leikmannahópi Skota má finna menn á borð við Billy Gilmour, Scott McTominay, John McGinn og Che Adams.

Markverðir: Zander Clark (St Johnstone), Craig Gordon (Heart of Midlothian), Liam Kelly (Motherwell), David Marshall (Hibernian)

Varnarmenn: Liam Cooper (Leeds United), Grant Hanley (Norwich City), Jack Hendry (Brugge), Aaron Hickey (Bologna), Scott McKenna (Nottingham Forest), Stephen O'Donnell (Motherwell), Nathan Patterson (Everton), Anthony Ralston (Celtic), Andy Robertson (Liverpool), John Souttar (Rangers), Greg Taylor (Celtic)

Miðjumenn: Stuart Armstrong (Southampton), Lewis Ferguson (Aberdeen), Billy Gilmour (Chelsea), Ryan Jack (Rangers), John McGinn (Aston Villa), Callum McGregor (Celtic), Scott McTominay (Manchester United), David Turnbull (Celtic)

Sóknarmenn: Che Adams (Southampton), Jacob Brown (Stoke City), Ryan Christie (Bournemouth), Lyndon Dykes (Queens Park Rangers), Ross Stewart (Sunderland)


Athugasemdir
banner
banner