Það er nóg um að vera í kvennaboltanum á Íslandi í kvöld.
Fimmtu umferð Bestu deildarinnar lýkur í kvöld með tveimur leikjum. Tindastóll fær Stjörnuna í heimsókn á Sauðárkrók og Breiðablik fær FH í heimsókn í Kópavoginn.
Leikur Breiðabliks og FH átti að fara fram í gær en var frestað vegna veðurs.
Nýliðar FH unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu í síðustu umferð gegn Keflavík. Komi liðið á óvart og sigri Breiðablik fer liðið upp fyrir Blika í deildinni.
Stjarnan getur tillt sér á toppinn með sigri en Tindastóll rífur sig frá botninum með sigri svo framarlega sem Blikar sigra FHinga.
Þrír leikir fara fram í Lengjudeild kvenna, tveir í 2. deild kvenna og tveir í fimmtu deild karla.
miðvikudagur 24. maí
Besta-deild kvenna
19:15 Tindastóll-Stjarnan (Sauðárkróksvöllur)
19:15 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
Lengjudeild kvenna
18:30 Grótta-KR (Vivaldivöllurinn)
19:15 Grindavík-Afturelding (Stakkavíkurvöllur)
19:15 Augnablik-Fram (Fífan)
2. deild kvenna
19:15 ÍR-Álftanes (ÍR-völlur)
19:15 Haukar-Smári (Ásvellir)
5. deild karla - B-riðill
20:00 KM-SR (Kórinn - Gervigras)
20:30 Kría-KFR (Vivaldivöllurinn)

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |