Fotbolti.net
24.05.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Spiluðu fyrsta leikinn í stórsigri gegn KR

Spiluðu fyrsta leikinn í stórsigri gegn KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Félagarnir Bjartur Orri Jónsson og Þór Andersen Willumsson komu við sögu í sínum fyrsta leik í efstu deild þegar Breiðablik tók á móti KR í stórskemmtilegum slag í gær.
Þeim var skipt saman á völlinn fyrir Aron Bjarnason og Viktor Karl Einarsson á 94. mínútu leiksins, en lokatölur urðu 6-3 fyrir Breiðablik.

Bjartur og Þór eru fæddir 2009 og því aðeins á sautjánda aldursári.

Bjartur er með einn leik að baki fyrir U17 og er Þór með þrjá leiki að baki og eitt mark. Þór er yngri bróðir Willums Þórs og Brynjólfs Andersen.

Sjáðu markaregnið í Kópavogi og öll hin mörkin í Bestu
TENGT EFNI

Sjáðu markaregnið í Kópavogi og öll hin mörkin í Bestu



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.