Spánverjinn Thiago Alcantara hefur yfirgefið þjálfarateymi Barcelona eftir lokaumferð spænska deildartímabilsins sem fór fram í gærkvöldi.
Hann hefur verið gríðarlega mikilvægur partur af þjálfarateymi Barca á yfirstandandi tímabili þar sem hann hefur hjálpað þýska teyminu hans Flick mikið í aðlögunarferlinu í Barcelona.
Tungumálakunnátta Thiago kom að góðum notum þar sem hann talar reiprennandi þýsku eftir dvöl sína í Bundesliga. Thiago var ómetanlegur partur af þjálfarateyminu og eru dyrnar opnar ef hann vill snúa aftur til Barcelona í framtíðinni.
Thiago býr yfir mikilli reynslu frá Barcelona eftir að hafa verið þar í átta ár áður en hann hélt til FC Bayern og loks til Liverpool á mögnuðum ferli sem leikmaður.
Thiago, sem lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum, ætlar í þjálfun og hefur ekki tíma til að einbeita sér að UEFA náminu samhliða því að starfa fyrir Spánarmeistara Barcelona.
Hann þarf tíma til að einbeita sér að persónulegum málum auk þess að hafa verið ráðinn í stjórn hjá L'Hospitalet sem leikur í fimmtu efstu deild á Spáni. Jordi Alba, fyrrum liðsfélagi Thiago hjá Barcelona og spænska landsliðinu, er meðeigandi í L'Hospitalet.
Thiago mun þar að auki starfa sem fótboltasérfræðingur fyrir Fox Sports meðan heimsmeistaramótið stendur yfir í sumar.
11.09.2025 14:00
Fyrsti dagurinn í nýrri vinnu hjá Thiago


