Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. júlí 2020 18:45
Aksentije Milisic
Sara Björk heldur áfram að skora fyrir Lyon
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdótir hefur nú skorað í þremur leikjum í röð fyrir Frakklands- og Evrópumeistara Lyon.

Lyon mætti Gornik Leczna, í Póllandi í dag og skoraði Sara eitt mark í 9-0 sigri Lyon. Vísir greindi frá þessu fyrr í dag.

Sara skoraði níunda mark leiksins í dag en hún kom inn á sem varamaður í hálfleik. Hún lagði upp mark fyrir Lucy Bronze á 58 mínútu skoraði svo sjálf á 74. mínútu.

Sara fer vel af stað hjá Lyon en hún hefur nú skorað í öllum leikjunum sem Lyon hefur spilað á undirbúningstímabilinu. Lyon á þó eftir að klára þetta tímabil vegna kórónuveirufaraldursins og fer deildin aftur af stað á sunnudaginn 2. ágúst.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner