KR-ingar hafa styrkt sig fyrir síðari hlutann í Lengjudeild kvenna en Bergdís Fanney Einarsdóttir er komin á láni frá Val.
Bergdís er fædd árið 2000 og hefur komið við sögu í sjö leikjum með Val í Pepsi Max-deildinni í sumar og gert eitt mark.
Hún er uppalin í ÍA en samdi við Val árið eftir að hafa skorað 15 mörk í 18 leikjum í næst efstu deild árið 2018.
Bergdís er nú gengin í raðir KR á láni frá Val og mun spila út þessa leiktíð.
KR-ingar eru í efsta sæti Lengjudeildarinnar með 28 stig þegar ellefu leikir eru búnir.
Athugasemdir