Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 24. júlí 2021 22:30
Victor Pálsson
Ronaldo og Messi gætu mæst í ágúst
Mynd: Getty Images
Það er möguleiki á að goðsagnirnar Lionel Messi og Cristiano Ronaldo mætist á vellinum þann 8. ágúst næstkomandi.

Ronaldo og Messi hafa lengi verið taldir tveir bestu fótboltamenn heims og léku með Barcelona og Real Madrid á Spáni.

Ronaldo hefur nú yfirgefið lið Real og er hjá Juventus og mætti Messi í Meistaradeildinni undir lok síðasta árs.

Það er alltaf gaman að sjá þessar ofurstjörnur mætast innan vallar og gæti það gerst í Joan Gamper bikarnum í ágúst.

Barcelona heldur þessa keppni á hverju ári en þar er nýrri leiktíð fagnað enda fer Evrópuboltinn bráðlega af stað.

Hvort stórstjörnurnar tvær spili í leiknum verður að koma í ljós en Barcelona tapaði bikarnum síðast árið 2012 í leik gegn Sampdoria.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner