Steini: Byggist á frammistöðu yfir heilt mót, ekki einstaka leik
Auglýsing

Steini var eðlilega súr eftir fyrsta tapleik sumarsins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var baráttuleikur eins og við vissum að þetta yrði. Þetta réðist allt á föstum leikatriðum, fyrirgjöfum og skallaboltum,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-1 tap gegn Selfoss á heimavelli. Þetta var jafnframt fyrsti tapleikur Breiðabliks á tímabilinu.
„Þetta er bara einn leikur og við höldum bara áfram. Fótboltamót byggist á frammistöðu yfir heilt mót en ekki í einstaka leik. Þetta er spurning um 18 leiki,“ sagði Steini áður en hann var spurður hvort tapið hefði verið óumflýjanlegt.
„Auðvitað vildi ég losna við það en svona er þetta bara. Þær refsuðu okkur bara og við kláruðum ekki þá möguleika sem við höfðum á að gera betur.“
„Svo áttum við að fá víti í stöðunni 1-1. Þetta var bara víti. Hún dettur á hana og Rakel dettur við það. Þetta er mjög einfalt atriði en ég nenni ekki að væla yfir þessu. Þetta var bara barnalegur ekki dómur,“ sagði Steini ósáttur. Hann fékk að líta gula spjaldið í kvöld fyrir að mótmæla öðrum dómi og var spurður út í heildarframmistöðu dómaranna.
„Auðvitað er maður ósáttur við svona stórt atriði. Ég á svo eftir að sjá betur þetta mark sem er dæmt af okkur en ég tek bara þátt í leiknum og er partur af þessu. Ef menn þola ekki ef ég segi eitthvað við þá þá er það þeirra vandamál. Ég hætti því ekki. Um leið og ég hætti því þá hætti ég að þjálfa.“
Blikaliðið lék án markahæsta leikmanns deildarinnar í kvöld en Berglind Björg Þorvaldsdóttir er búin að vera einstaklega óheppin og er komin í enn eina sóttkvínna eftir að Covid-smit komst upp á vinnustað hennar.
„Þetta er það sem við lifum við í dag og hún er bara það óheppin að lenda í því að vera á vinnustað þar sem þetta kemur upp,“ sagði Steini um fjarveru markahróksins.
Nánar er rætt við þjálfara Breiðabliks í spilaranum hér að ofan.