Davide Zappacosta hefur yfirgefið Chelsea og gengið í raðir Atalanta.
Vængbakvörðurinn fór í læknisskoðun í morgun en hann er keyptur á tíu milljónir evra. Fiorentina reyndi líka að fá hann en Atalanta vann baráttuna.
Zappacosta, sem er 29 ára, þekkir hvern krók og kima hjá Atalanta en hann kom í gegnum akademíu félagsins og fór á lán til félagsins 2011. Hann spilaði svo aftur með liðinu 2014-15.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Chelsea og hann var lánaður til Roma og Genoa en yfirgefur Chelsea nú alfarið.

⚫️ 𝐁𝐄𝐍𝐕𝐄𝐍𝐔𝐓𝐎 𝐙𝐀𝐏𝐏𝐀𝐂𝐎𝐒𝐓𝐀 🔵@DZappacosta è un nuovo giocatore dell’Atalanta! 🚀 Bentornato, Davide! 👋#Zappacosta is a new #Atalanta player! 🤝 Welcome back, Davide! 🤩#GoAtalantaGo pic.twitter.com/uNJpCjpwAz
— Atalanta B.C. (@Atalanta_BC) August 24, 2021
Athugasemdir