Lið vikunnar í enska - Jóhann Berg og tveir úr Wolves

Markvörður: Petr Cech (Arsenal) hefur verið gagnrýndur á upphafi tímabils en hann sýndi hvers hann er megnugur um helgina. Hann hélt sínum mönnum inni í leiknum gegn Everton og var maður leiksins í mikilvægum sigri.

Mynd: Getty Images

Hægri bakvörður: Pablo Zabaleta (West Ham) nýtti alla sína reynslu til að koma í veg fyrir að Eden Hazard fengi að leika lausum hala. Hamrarnir náðu í markalaust jafntefli og geta þakkað argentínska bakverðinum fyrir.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Joel Matip (Liverpool) steig varla feilskref og skoraði í þægilegum sigri gegn Southampton.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Willy Boly (Wolves) sýndi mikið öryggi er Úlfarnir nældu sér í verðskuldað stig á Old Trafford.

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörður: Ben Chilwell (Leicester) var öflugur og stjórnaði vinstri vængnum gegn Huddersfield. Heimamenn í Leicester lentu undir en náðu að snúa leiknum sér í hag.

Mynd: Getty Images

Miðja: James Maddison (Leicester) skoraði sitt þriðja úrvalsdeildarmark um helgina. Hann er búinn að skora þrjú og leggja eitt upp fyrir sitt nýja félag.

Mynd: Getty Images

Miðja: Declan Rice (West Ham) varðist vel og spilaði í raun sem varnarmaður í markalausu jafntefli gegn Chelsea.

Mynd: Getty Images

Miðja: Joao Moutinho (Wolves) kórónaði góða frammistöðu gegn Man Utd með jöfnunarmarki.

Mynd: Getty Images

Hægri kantur: Jóhann Berg Guðmundsson (Burnley) skoraði ekki en skilaði gífurlega góðu vinnuframlagi og var mjög skapandi í stórsigri gegn Bournemouth. Hann lagði annað mark leiksins upp og fékk ljómandi dóma fyrir frammistöðu sína.

Mynd: Getty Images

Vinstri kantur: Riyad Mahrez (Man City) kom af bekknum og var óstöðvandi í stórsigri gegn Cardiff. Hann skoraði tvennu og gerir sterkt tilkall til byrjunarliðssætis.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Aleksandar Mitrovic (Fulham) hefur alltaf verið öflugur sóknarmaður en hefur einnig ávalt verið gagnrýndur fyrir markaþurrð. Það virðist vera að breytast í ár og er hann markahæstur ásamt Eden Hazard með fimm mörk.

Mynd: Getty Images






