Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. september 2021 21:23
Brynjar Ingi Erluson
Elías Már spilaði klukkutíma í tapi
Mynd: Nimes
Íslenski framherjinn Elías Már Ómarsson var mættur aftur í byrjunarlið franska B-deildarliðsins Nimes í kvöld eftir meiðsli en liðið tapaði fyrir Le Havre, 1-0.

Elías kom til Nimes frá Excelsior fyrir tímabilið og byrjaði hann ágætlega. Hann gerði eitt mark í fyrstu þremur leikjunum áður en hann meiddist og missti af næstu fjórum leikjum liðsins.

Hann spilaði 24 mínútur í síðasta leik og kom svo inn í byrjunarliðið gegn Le Havre í kvöld.

Elías lék 62 mínútur í tapi Nimes, sem er nú í 9. sæti deildarinnar með 13 stig.
Athugasemdir
banner
banner