Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 24. september 2022 16:49
Ívan Guðjón Baldursson
Birkir Heimis inn í U21 landsliðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Heimisson, miðjumaður Vals, hefur verið kallaður upp í U21 landsliðshópinn fyrir seinni leikinn mikilvæga gegn Tékklandi í umspili um sæti á lokamóti EM 2023.


Strákarnir töpuðu heimaleiknum 1-2 gegn Tékkum og bíður þeirra erfitt verkefni á útivelli. Liðin mætast aftur næsta þriðjudag.

Birkir tekur sæti Sævars Atla Magnússonar í hópnum. Sævar Atli fékk gult spjald í tapinu á Víkingsvelli og er því í leikbanni fyrir seinni viðureignina.

Sævar Atli spilar sem framherji en Birkir er vanur að spila aftar á vellinum hjá Val.

Birkir er fæddur um aldamótin og á rúma 60 keppnisleiki að baki á þremur árum í Hlíðunum. Hann á fjóra leiki að baki fyrir U21 landsliðið eftir að hafa verið lykilmaður í U16 og U17.


Athugasemdir
banner
banner