KR-ingar ætla að minnast goðsagnarinnar Bjarna Fel fyrir stórleikinn við Val í Bestu-deild karla í dag.
Hr. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands hefur boðað komu sína á leikinn sem hefst klukkan 14:00 í dag að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þegar liðin ganga inn á völlinn mun fáni með mynd af Bjarna fylgja í fararbroddi inn að stúkunni en búist er við fjölda fólks á völlinn og þeirr á meðal er fjölskylda Bjarna sem mun verða í stúkunni og taka þátt í að heiðra hann.
Bjarni lést fimmtudaginn 14. setpember síðastliðinn í Danmörku, 86 ára að aldri. Hann er fyrrverandi íþróttafréttamaður og landsliðsmaður í fótbolta.
Bjarni fékk fálkaorðuna hjá forseta Íslands á nýársdag 2022 fyrir störf á sviði íþróttamála, félagsmála og miðlunar. Bjarni varð fimm sinnum Íslandsmeistari með KR á árunum 1959-1968 og bikarmeistari í sjö skipti á þessum árum. Hann spilaði sex leiki fyrir A-landslið Íslands.
Frægustu leikir Bjarna með KR voru Evrópuleikirnir við Liverpool árið 1964 en þetta voru fyrstu leikir enska félagsins í Evrópu. Daginn sem hann lést, 14. september voru 59 ár frá leik liðanna á Anfield.
Bjarni starfaði sem íþróttafréttamaður á RÚV í 42 ár og var mjög vinsæll í því hlutverki. Hann kom með enska boltann á sjónvarpsskjáinn hjá landsmönnum hjá RÚV á níundan áratug síðustu aldar.
Hann varð vitni að harmleiknum á Hillsborough leikvanginum 15. aprí 1989 þegar 96 manns létu lífið í troðningi í áhorfendastúkunni. Þangað hafði hann farið til að lýsa leik Liverpool og Nottingham Forest í undanúrslitum enska bikarsins.