24.09.26 - 23:22
Elvar Geir Magnússon
Heimir svekktur: Ég er ekki sálfræðingur

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands.

Mynd: EPA

Kósovó skoraði sigurmarkið seint í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Írska landsliðið, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, fór illa af stað í riðli sínum í Þjóðadeildinni en það tapaði 1-0 á útivelli gegn Kósovó. Eina markið kom seint í leiknum en írskir fjölmiðlar segja að sitt lið hafi ekkert átt skilið út úr leiknum og Heimir tekur undir það.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Heimir tapaði í Kósovó - Austurríki lagði Ísrael
„Það voru vonbrigði að fá á okkur mark svona seint í leiknum. Á heildina litið er ég mjög svekktur með frammistöðuna. Við hefðum getað sloppið með stig en frammistaðan var langt frá því sem við viljum sjá," sagði Heimir.
„Það voru margir leikmenn langt frá sínu besta og sem lið skorti okkur frumkvæði. Við vissum nákvæmlega hvernig leikur þetta yrði en náðum ekki að framkvæma það sem við ætluðum. Þeir áttu skilið að vinna, þeir voru einfaldlega betri en við."
Öll umræða hefur snúist um komandi leiki Írlands gegn Ísraels og eru háværar raddir í Írlandi um að réttast væri að sniðganga þá leiki. Heimir var spurður hvort þetta hafi haft truflandi áhrif.
„Ég er ekki sálfræðingur og get ekki gefið þér svar. Okkur fannst að einbeitingin væru til staðar og allir tilbúnir, en maður veit aldrei. Þetta hefur augljóslega verið undarlegur og erfiður undirbúningur," segir Heimir.

Heimild: Irish Sun