24.10.13 - 13:29
Hafliði Breiðfjörð
Egill Atlason tekur við Reyni af pabba sínum (Staðfest)

Egill Atlason er nýr þjálfari Reynis Sandgerði og tekur við starfinu af Atla Eðvaldssyni föður sínum. Egill mun einnig spila með liðinu í 2. deildinni næsta sumar en hann er 31 árs gamall.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Egill Atlason hefur verið ráðinn þjálfari Reynis Sandgerði og tekur við starfinu af pabba sínum, Atla Eðvaldssyni. Þetta staðfesti Sigurður Jóhannsson formaður meistaraflokksráðs Reynis í spjalli við Fótbolta.net í dag.
Egill sem er 31 árs gamall verður spilandi þjálfari Reynis en ekki er ákveðið hver verður aðstoðarmaður hans með liðið. Hann kemur frá Leikni þar sem hann spilaði alla 24 leiki liðsins í deild og bikar í sumar og skoraði eitt mark.
Atli Eðvaldsson faðir Egils tók við liðinu fyrir ári síðan og undir hans stjórn endaði liðið í 8. sæti 2. deildarinnar í sumar. Ekki er ljóst hvað hann tekur sér fyrir hendur.
,,Egill var fyrsti kostur þegar það kom upp að það væri vafamál hvort Atli yrði áfram. Ég hafði því samband við Egil og spurði hann og honum leist vel á þetta,\" sagði Sigurður við Fótbolta.net í dag.
,,Ég er búinn að hafa auga á Agli í þónokkurn tíma. Við töldum þetta bestu lausnina fyrir Reyni sandgerði í dag þó það sé eftirsjá eftir Atla. Við þökkum Atla fyrir sitt starf með liði, hann skilar góðu búi.\"
Sigurður sagði að hann búist við að allir leikmenn sem spiluðu með liðinu í sumar verði áfram og auk þess ætlar félagið að styrkja hópinn um tvo sterka leikmenn.

Atli Eðvaldsson og Kjartan Másson mynduðu eitt flottasta þjálfarateymi landsins síðasta sumar með Reyni. Nú tekur sonur Atla við starfinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð