Fotbolti.net
24.10.13 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Róbert Ragnar mun þjálfa kvennalið Völsungs (Staðfest)

Róbert Ragnar Skarphéðinsson.

Róbert Ragnar Skarphéðinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kvennaboltinn
Róbert Ragnar Skarphéðinsson hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Völsungi fyrir komandi keppnistímabil. Þetta kemur fram á heimasíðu Völsungs.
Róbert þekkir stelpurnar vel, en hann var forvera sínum Jóhanni Pálssyni innan handar á síðasta tímabili.

Róbert hefur einnig verið leikmaður Völsungs frá barnsaldri en hann spilaði tæplega 200 leiki með liðinu á sínum tíma.

Róbert Ragnar mun hætta þjálfun 3.flokks karla sem hann hefur stýrt undanfarin tvö ár og Unnar Þór Garðarsson tekur við keflinu þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.