lau 24. október 2020 11:30
Aksentije Milisic
„Verður martröð fyrir Maguire að mæta Werner"
Mynd: Getty Images
Fyrirliði Manchester United, Harry Maguire, gæti lent í algjörri martröð í dag ef hann mætir Timo Werner. Þetta segir fyrrverandi varnarmaðurinn Glen Johnson.

Frank Lampard og lærisveinar hans mæta á Old Trafford í dag og hefst leikurinn klukkan 16.30. United kemur fullt sjálfstraust í leikinn en liðið vann öflugan útisigur á PSG í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Timo Werner gerði tvennu í síðasta deildarleik fyrir Chelsea og voru mörkin einkar falleg. Johnson segir að hann biðji fyrir því að Maguire verði í byrjunarliðinu hjá United.

„Ef ég væri Timo, þá væri ég mikið að vonast eftir því að Maguire spili leikinn. Hann myndi vera algjör martröð fyrir Maguire," sagði Glen.

„En þegar litið er á stóru myndina, þá er ég sammála. Hann er fyrirliðið United og það er erfitt að hafa hann ekki í liðinu. Hann er stór leikmaður fyrir þá."

„En ef ég væri Axel (Tuanzebe), þá myndi ég hugsa eftir síðustu frammistöðu mína, afhverju er ég ekki að spila?.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner