Fotbolti.net
24.10.21 - 16:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gaf Maguire 0 í einkunn - „Skelfilegur"

Harry Maguire.

Harry Maguire.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool er að niðurlægja Manchester United í leik sem er núna í gangi á Old Trafford.
Mohamed Salah var að enda við það að koma Liverpool í 5-0. Hann er búinn að skora þrennu.

Staðan var 0-4 í hálfleik og hefur Manchester United aldrei verið jafnmörgum mörkum undir í hálfleik í leik í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er sögulega lélegt hjá United.

Samuel Luckhurst á Manchester Evening News gaf leikmönnum Man Utd einkunnir í hálfleik. Hann gaf einum leikmanni Man Utd 0 í einkunn.

„Skelfilegur," skrifaði hann um frammistöðu fyrirliðans Harry Maguire.

Hægt er að skoða einkunnagjöfina með því að smella hérna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.