Antoine Semenyo, Bruno Fernandes, Nicolas Jackson og fleiri koma við sögu.
   sun 24. október 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Norwich búið að skora þrjú mörk í síðustu 19 úrvalsdeildarleikjum
Mynd: EPA
Norwich City hefur farið herfilega af stað í ensku úrvalsdeildinni og er liðið aðeins með tvö stig eftir níu fyrstu umferðirnar.

Norwich er aðeins búið að skora tvö mörk á deildartímabilinu og fá 23 á sig sem verður að teljast merkilega slakur árangur.

Sparkspekingar tóku þá að skoða tölfræði Norwich í ensku úrvalsdeildinni og í ljós kom að liðið hefur aðeins skorað þrjú mörk í síðustu 19 úrvalsdeildarleikjum sínum.

Norwich var síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2019-20 og endaði í langneðsta sæti með 21 stig. Þar gekk liðinu sérstaklega illa undir lokin og tókst aðeins að skora eitt mark í síðustu tíu deildarleikjunum fyrir fall.

Norwich fór beint aftur upp í úrvalsdeildina en virðist vera á leið niður eftir hrikalega byrjun.

Félagið er búið að tapa 17 af síðustu 19 úrvalsdeildarleikjum sínum og gera 2 jafntefli.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 17 12 3 2 31 10 +21 39
2 Man City 17 12 1 4 41 16 +25 37
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 17 8 5 4 29 17 +12 29
5 Liverpool 17 9 2 6 28 25 +3 29
6 Sunderland 17 7 6 4 19 17 +2 27
7 Man Utd 16 7 5 4 30 26 +4 26
8 Crystal Palace 17 7 5 5 21 19 +2 26
9 Brighton 17 6 6 5 25 23 +2 24
10 Everton 17 7 3 7 18 20 -2 24
11 Newcastle 17 6 5 6 23 22 +1 23
12 Brentford 17 7 2 8 24 25 -1 23
13 Tottenham 17 6 4 7 26 23 +3 22
14 Bournemouth 17 5 7 5 26 29 -3 22
15 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
16 Leeds 17 5 4 8 24 31 -7 19
17 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
18 West Ham 17 3 4 10 19 35 -16 13
19 Burnley 17 3 2 12 19 34 -15 11
20 Wolves 17 0 2 15 9 37 -28 2
Athugasemdir
banner