17.10.26 - 22:21
Ívan Guðjón Baldursson
Jackson: Hann hefði getað fótbrotið mig

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nicolas Jackson var í byrjunarliði Aston Villa sem rétt marði sigur á útivelli gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Manzambi gerði eina markið í Newcastle
Jackson fékk færi til að skora en tókst ekki að setja boltann í netið, þess í stað sá Svisslendingurinn efnilegi Johan Manzambi um að skora eina mark leiksins.
Jackson svaraði spurningum að leikslokum og var meðal annars spurður út í tæklingu sem hann varð fyrir í fyrri hálfleik. Sven Botman straujaði Jackson og fékk gult spjald fyrir, en Jackson vildi sjá andstæðing sinn líta rauða spjaldið.
„Þetta er mjög erfiður útivöllur og Guði sé lof að við náðum í sigurinn. Hann (Johan Manzambi) er stórkostlegur leikmaður sem er ungur og ennþá að bæta sig. Hann verður betri með hverjum leiknum og getur skorað mörk og gefið stoðsendingar. Vonandi náum við langt saman," sagði Jackson. „Hann mun ná langt í fótboltaheiminum og vonandi lendir hann ekki í meiðslum.
„Ég hefði getað fótbrotnað í leiknum í dag, en sem betur fer þá líður mér vel. Ég veit að dómarinn gaf gult spjald en takkarnir voru hátt uppi og vonandi verður þetta rautt spjald næst. Ég var næstum fótbrotinn en þetta er partur af leiknum. Það mikilvægasta er að við unnum og að mér líður vel og að honum (Manzambi) líður vel."
Jackson hrósaði Unai Emery þjálfara í hástert eftir lokaflautið og talaði einnig um færin sem hann klúðraði í leiknum.
Manzambi var hress að leikslokum og var spurður út í félagaskiptin sín síðasta sumar. Newcastle reyndi að kaupa Manzambi en Aston Villa stal honum á síðustu stundu.
„Ég kom til Aston Villa út af því að liðið hérna er svo sterkt. Ég spilaði við Villa í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og ég vissi að þetta væri fullkominn áfangastaður fyrir mig."