Fotbolti.net
17.10.26 - 19:56
Ívan Guðjón Baldursson

Bauluðu á úrvalsdeildarlagið

Bauluðu á úrvalsdeildarlagið
Canon

Mynd: EPA

Manchester City tók á móti nýliðum Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni í dag og skóp 3-2 sigur til að halda fullkominni byrjun sinni á nýju deildartímabili áfram.
Vonast til að sjá sem flesta banana í stúkunni
TENGT EFNI

Vonast til að sjá sem flesta banana í stúkunni

Lærlingar Enzo Maresca eiga 21 stig eftir 7 fyrstu umferðirnar og eru, sem stendur, með sex stiga forystu á Englandsmeistara Arsenal.

Fyrir upphafsflautið í Manchester í dag mátti sjá gríðarlega mikið magn af ofvöxnum banönum meðal stuðningsmanna Man City í stúkunni.

Þegar úrvalsdeildarlagið var svo spilað fyrir leik mátti heyra mikið baul koma frá áhorfendapöllunum, enda eru stuðningsmenn Man City afar ósáttir með stjórn ensku úrvalsdeildarinnar. Úrvalsdeildin gæti endað á að refsa City grimmilega fyrir alvarleg brot á fjármálareglum deildarinnar, sem voru gerð verri með lygum og yfirhylmingum. City var dæmt sekt í málinu en hefur áfrýjað og verður möguleg refsing ekki kveðin fyrr en áfrýjunarferlinu lýkur.

„Stemningin var mjög góð. Stuðningsmenn, félagið og leikmenn eru öll saman í þessari vegferð," sagði Enzo Maresca þjálfari eftir lokaflautið, en rúmlega 60 þúsund manns mættu á völlinn sem er nýtt áhorfendamet á Etihad.
Bauluðu á úrvalsdeildarlagið
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Everton7+110
8Leeds6+39
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Crystal Palace6-37
14Man Utd606
15Coventry6-66
16Nott. Forest6-35
17Fulham7-35
18Sunderland6-64
19Bournemouth6-63
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.