Fotbolti.net
24.10.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tijana færir sig alfarið í Árbæinn (Staðfest)

Tijana Krstic

Tijana Krstic

Canon

Mynd: Fylkir/Facebook

Hertz

Tijana Krstic hefur gert samning við Fylki en hún kemur til liðsins frá KR. Hún gerir samning út sumarið 2024.

Tijana lék með Fylki á láni í Lengjudeildinni í sumar þar sem liðið endaði í 6. sæti en hún hefur nú fært sig alfarið yfir til Árbæjarliðsins.

Tijana lék átta leiki í sumar en hún er 27 ára gamall varnarmaður. Hún lék í fjögur ár með KR og spilaði þar 69 leiki og skoraði 5 mörk.

Áður en hún kom til Íslands varð hún serbneskur meistari fjórum sinnum.

„Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu." Segir í tilkynningu Fylkis á Facebooksíðu félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.