Fotbolti.net
24.10.26 - 19:14
Ívan Guðjón Baldursson

Logi bar fyrirliðabandið og skoraði - Frábær sigur hjá Freysa

Logi bar fyrirliðabandið og skoraði - Frábær sigur hjá Freysa
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Síðustu Íslendingaleikjum dagsins er lokið í karlaboltanum í Evrópu og skoraði Logi Tómasson eina mark Samsunspor í tapi gegn Amedspor í efstu deild í Tyrklandi.
Logi bar fyrirliðabandið og skoraði í fyrri hálfleik en liðsfélagi hans fékk að líta tvö gul spjöld með skömmu millibili. Staðan var því 1-0 í leikhlé en Samsunspor var manni færri. Emre Kilinc er fyrirliði Samsunspor en var ekki með í dag.

Gestirnir nýttu sér ekki liðsmuninn því þeir misstu sinn eigin leikmann af velli með rautt spjald á 61. mínútu, en tókst þrátt fyrir það að snúa stöðunni við. Tíu gegn tíu tókst Amedspor að skora tvö mörk á lokakaflanum svo lokatölur urðu 1-2. Gift Orban skoraði fyrst úr vítaspyrnu áður en hann lagði sigurmarkið upp.

Logi og félagar eru aðeins með 4 stig eftir 9 umferðir á meðan Amedspor fer tímabundið á topp deildarinnar með 20 stig. Þetta var sjöunda tap liðsins í röð.

Í efstu deild í Noregi var Viðar Ari Jónsson ekki í hóp hjá Hamarkameratene sem tapaði á heimavelli gegn Rosenborg og er aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu þegar sex umferðir eru eftir.

Freyr Alexandersson er þjálfari Rosenborgar og er liðið í harðri baráttu um Evrópusæti eftir magnaðan árangur á síðustu vikum.

Kolbeinn Birgir Finnsson var þá ekki með í frábærum sigri Vålerenga gegn toppbaráttuliði Bodö/Glimt. Kolbeinn er að glíma við meiðsli, en Vålerenga fjarlægðist fallbaráttuna enn frekar með þessum sigri. Þetta er annar sigur liðsins í röð.

Í öðrum leikjum dagsins var Hilmir Rafn Mikaelsson ónotaður varamaður í jafntefli hjá Sigma Olomuc í Tékklandi. Sigma er í þriðja sæti efstu deildar, sjö stigum á eftir toppliði Slavia Prag.

Í Danmörku var Ólafur Dan Hjaltason ónotaður varamaður í markalausu jafntefli hjá Aarhus Fremad í næstefstu deild. Aarhus er með 15 stig eftir 12 umferðir þar.

Að lokum var Hólmbert Aron Friðjónsson ekki í hóp hjá Gwangju í Suður-Kóreu. Gwangju vann á útivelli en endar tímabilið á botni efstu deildar.

Samsunspor 1 -2 Ademspor
1-0 Logi Tómasson ('21)
1-1 Gift Orban ('73, víti)
1-2 Dia Saba ('84)
Rautt spjald: Afonso Sousa, Samsunspor ('37)
Rautt spjald: Mbaye Diagne, Ademspor ('61)

Zlin 1 - 1 Sigma Olomuc

Vejle 0 - 0 Aarhus Fremad

HamKam 0 - 3 Rosenborg

Bodö/Glimt 0 - 1 Valerenga

Bucheon 0 - 3 Gwangju
Logi bar fyrirliðabandið og skoraði - Frábær sigur hjá Freysa
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Logi bar fyrirliðabandið og skoraði - Frábær sigur hjá Freysa
Canon

Mynd: Aarhus Fremad

Logi bar fyrirliðabandið og skoraði - Frábær sigur hjá Freysa
Canon

Mynd: Valerenga

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.