24.11.20 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Bjartsýnir á að Tottenham landi titlinum

Ingimar Helgi Finnsson og Hjálmar Örn Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Helgi Finnsson og Hjálmar Örn Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er létt yfir stuðningsmönnum Tottenham þessa dagana enda liðið á toppnum í ensku úrvalsdeildinni. Hjálmar Örn Jóhansson og Ingimar Helgi Finnsson eru harðir stuðningsmenn Tottenham og þeir ræddu málin í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í gær. Þeir eru bjartsýnir á að Tottenham geti orðið enskur meistari í vor.
„Maður lætur sig alltaf dreyma. Ég er að vona að það verði komið bóluefni í vor og ég geti flogið með Ingimari út," sagði Hjálmar Örn í þættinum í gær.
„Ég er mjög bjartsýnn á að það komi málmur í vor," sagði Ingimar. „Liverpool er liðið sem þarf að berjast þrátt fyrir að allir séu meiddir. Ég ætla að vera með Hjamma í þessu og trúa."
Í þætti gærdagsins var nánar rætt um titilbaráttuna en Hjálmar og Ingimar afskrifa báðir Manchester City í þeirri baráttu.
Hér að neðan má hlusta á þátt gærdagsins. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

<b>Enski boltinn</b> - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Newcastle | 9 | -2 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Everton | 9 | -1 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |