Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. nóvember 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Lewandowski um framtíðina: Ég verð að fá tíma til að hugsa þetta
Robert Lewandowski gæti farið frá Bayern eftir tvö og hálft ár
Robert Lewandowski gæti farið frá Bayern eftir tvö og hálft ár
Mynd: Getty Images
Pólski framherjinn Robert Lewandowski er ekki viss um að hann eigi eftir að klára ferilinn með þýska liðinu Bayern München en hann ræddi við AP um framtíðina.

Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið einn heitasti framherji heims síðasta áratuginn.

Lewandowski hefur skorað 362 mörk í 388 leikjum fyrir Borussia Dortmund og Bayern München og virðist ekkert lát á markaskorun hans.

Hann er samningsbundinn til 2023 en hann hefur ekki ákveðið hvað tekur við eftir það.

„Ég er með samning til 2023 og ég hef ekkert pælt í því hvað ég geri eftir það. Tvö og hálft ár er langur tíma og ég veit að ég get spilað lengur en ég verð að fá tíma til að hugsa um þetta," sagði Lewandowski.
Athugasemdir
banner
banner
banner