Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. nóvember 2021 22:28
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Toppliðin gerðu jafntefli - Stórsigur hjá Blackburn
Lærisveinar Rooney stálu stigi af toppliði Fulham
Lærisveinar Rooney stálu stigi af toppliði Fulham
Mynd: Getty Images
Ben Brereton skoraði tvö mörk fyrir Blackburn
Ben Brereton skoraði tvö mörk fyrir Blackburn
Mynd: Getty Images
Nítjánda umferðin í ensku B-deildinni kláraðist í kvöld en bæði Bournemouth og Fulham gerðu jafntefli á meðan Blackburn Rovers vann 4-0 sigur á Peterborough United.

Lærisveinar Wayne Rooney í Derby County gerðu markalaust jafntefli við topplið Fulham í dag. Derby vann Bournemouth í síðustu umferð og gerðu svo jafntefli við hitt ofurlið deildarinnar í kvöld.

Það er því full ástæða fyrir Derby að horfa björtum augum á restina af tímabilinu ef liðið heldur áfram að sækja sér stig en liðið er nú með eitt stig á botninum. Búið er að draga 18 stig af liðinu á þessari leiktíð.

Bournemouth gerði 1-1 jafntefli við Millwall. Jón Daði Böðvarsson er enn í frystikistunni hjá Millwall og var ekki í hóp. Ben Brereton gerði þá tvö mörk í 4-0 sigri Blackburn Rovers á Peterborough United.

Fulham er á toppnum með 42 stig en Bournemouth í öðru sæti með 41 stig. WBA kemur þar næst á eftir með 33 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Fulham 0 - 0 Derby County

Barnsley 0 - 2 Swansea
0-1 Olivier Ntcham ('74 )
0-2 Jamie Paterson ('79 )

Blackburn 4 - 0 Peterborough United
1-0 Ben Brereton ('45 )
2-0 Darragh Lenihan ('45 )
3-0 Harry Pickering ('45 )
4-0 Ben Brereton ('46 )

Bristol City 1 - 0 Stoke City
1-0 Tyreeq Bakinson ('38 )
Rautt spjald: Joe Allen, Stoke City ('90)

Cardiff City 0 - 1 Hull City
0-1 Ryan Longman ('15 )

Millwall 1 - 1 Bournemouth
0-1 Dominic Solanke ('44 )
1-1 Benik Afobe ('67 )

QPR 1 - 0 Huddersfield
1-0 Luke Amos ('81 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner