32-liða úrslit enska bikarsins eru í fullum gangi yfir helgina og hefst fjörið rétt eftir hádegi í dag þegar Leicester heimsækir Brentford.
Tveir úrvalsdeildarslagir eru svo á dagskrá. Southampton tekur á móti Tottenham í gríðarlega spennandi slag á meðan Burnley fær Norwich í heimsókn.
Jóhann Berg Guðmundsson er að ná sér af meiðslum og gæti komið við sögu gegn Norwich.
West Ham á þá heimaleik gegn West Brom á meðan Newcastle mætir Oxford United.
Jón Daði Böðvarsson og félagar í Millwall fá Sheffield United, spútnik lið úrvalsdeildartímabilsins, í heimsókn.
Chelsea heimsækir svo Hull City á KCOM Stadium í síðasta leik dagsins.
Leikir dagsins:
12:45 Brentford - Leicester (Stöð 2 Sport)
15:00 Southampton - Tottenham (Stöð 2 Sport)
15:00 Burnley - Norwich (Stöð 2 Sport 2)
15:00 Millwall - Sheffield Utd
15:00 West Ham - West Brom
15:00 Newcastle - Oxford
15:00 Coventry - Birmingham
15:00 Portsmouth - Barnsley
15:00 Reading - Cardiff
17:30 Hull - Chelsea (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir