Breiðablik skoraði fjögur mörk gegn FH er liðin mættust í Fótbolta.net mótinu fyrir hádegi í dag.
Thomas Mikkelsen gerði fyrsta og síðasta mark leiksins fyrir Blika og komust Benedikt V. Waren og Gísli Eyjólfsson einnig á blað.
Guðmundur Kristjánsson gerði eina mark FH beint úr aukaspyrnu.
Blikar ljúka því riðlakeppninni með fullt hús stiga og mæta ÍA í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins.
Hér fyrir neðan má sjá allt það helsta úr leiknum í boði BlikarTV.
Athugasemdir