Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. janúar 2021 08:59
Magnús Már Einarsson
Arsenal fær Ödegaard á láni
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur náð samkomulagi við Real Madrid um að fá miðjumanninn Martin Ödegaard á láni út tímabilið.

Ödegaard mun fara í læknisskoðun í dag og klára félagaskiptin.

Hinn 22 ára gamli Ödegaard vildi komast á lán í þessum mánuði til að fá meiri spiltíma en hann hefur komið við sögu í níu leikjum með Real Madrid á tímabilinu.

Real Sociedad vildi einnig fá Ödegaard aftur á láni en hann var á láni hjá félaginu á síðasta tímabili.

Fleiri félög á Englandi höfðu einnig áhuga en nú er Arsenal búið að vinna kapphlaupið um leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner